Elvar Ásgeirsson átti sannkallaðan stórleik fyrir Ribe-Esbjerg HH þegar liðið tapaði 28:32 fyrir Skjern Håndbold í dönsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. Elvar var markahæsti leikmaður Ribe-Esbjerg er hann skoraði átta mörk.
Mörkin átta komu úr 13 skotum og gaf Elvar auk þess fjórar stoðsendingar. Skjern reyndist hins vegar ögn of stór biti fyrir heimamenn í Ribe-Esbjerg.
Skjern hefur raunar átt frábært tímabil og er í öðru sæti með 27 stig, 13 stigum á eftir toppliði Aalborg Håndbold. Ribe-Esbjerg er á hinum enda deildarinnar í 13. sæti af 14 liðum en þó 11 stigum fyrir ofan Grindsted í botnsætinu, sem fellur að öllum líkindum beint niður í B-deild.
Ribe-Esbjerg er einnig aðeins þremur stigum frá áttunda sæti, síðasta sætinu inn í úrslitakeppnina um danska meistaratitilinn, og er því ekki af baki dottið þegar liðið á fimm leiki eftir í úrvalsdeildinni.




