- Auglýsing -
- Auglýsing -

Elvar Otri lengir veruna hjá Gróttu

Elvari Otra Hjálmarssyni líkar vistin hjá Gróttu. Mynd/Grótta
- Auglýsing -

Leikstjórnandinn og skyttan Elvar Otri Hjálmarsson hefur framlengt samning sinn við Handknattleiksdeild Gróttu til tveggja ára. Elvar Otri er 23 ára gamall og kom til Gróttu frá Fjölni fyrir tveimur árum síðan. Hann fór mikinn á nýafstöðnu leiktímabili en þá skoraði hann 44 mörk og var öflugur í varnarleik Gróttuliðsins í Olísdeildinni.

“Það eru frábær tíðindi að Elvar verði áfram í Gróttu enda mikilvægur hlekkur í liðinu. Það verður gaman að sjá hann og Gróttuliðið taka næsta skref á næsta leiktímabili,” segir í tilkynningu Gróttu í dag.

Grótta hefur sótt liðsauka síðustu daga fyrir átökin á næstu leiktíð:

Atli Steinn verður Gróttumaður

Sjötti leikmaðurinn yfirgefur Selfoss

Karlar – helstu félagaskipti 2024

Lokahóf: Ída og Ágúst best hjá Gróttu – myndir

Nýjustu fréttir.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -