- Auglýsing -
Evrópumót U18 og U20 ára landsliða í handknattleik karla hafa verið slegin út af borðinu en landslið Íslands í þessum aldursflokkum höfðu áunnið sér þátttökurétt. Upphaflega stóð til að mótin færu fram í sumar sem leið en var frestað fram í janúar vegna kórónuveirfaraldursins.
Í dag tilkynnti Handknattleikssamband Evrópu, EHF, að hætt hafi verið við að halda mótin vegna sóknar kórónuveirunnar í Evrópu um þessar mundir.
EHF stefnir að því að halda áætlun þegar kemur að mótum yngri landsliða kvenna næsta sumar.
- Auglýsing -