- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

EM-hópur Íslands liggur fyrir

- Auglýsing -

Snorri Steinn Guðjónsson tilkynnti fyrir stundu hvaða leikmenn hann verður með í 20 manna æfingahóp landsliðsins fyrir Evrópumótið í handknattleik karla sem hefst 14. janúar. Átján leikmenn hópsins fara á EM. Einar Baldvin Baldvinsson markvörður Aftureldingar er valinn í landsliðshóp í fyrsta skipti. Hann mun æfa með landsliðinu fyrir brottför en Björgvin Páll Gústavsson og Viktor Gísli Hallgrímsson er ætlað að taka þátt í EM.


Sigvaldi Björn Guðjónsson sem verið hefur með á öllum stórmótum frá HM 2019 er ekki í hópnum. Teitur Örn Einarsson er valinn sem hægri hornmaður ásamt Óðni Þór Ríkharðssyni.

Bjarki Már Elísson er valinn í hægra horni með Orra Frey Þorkelssyni en Stiven Tobar Valencia situr eftir heima.

Líklegt er að Þorsteinn Leó Gunnarsson fari með landsliðinu. Þar af leiðandi geta 19 leikmenn farið á EM, hafi Þorsteinn Leó jafnað sig af meiðslum í tíma áður. Hann verður a.m.k. ekki með á æfingamótinu í Frakklandi 7. og 9. janúar. „Ég vona að Þorsteinn geti verið með okkur í milliriðli, það er minn draumur,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari á blaðamannafundi í dag.

EM-hópurinn

Markverðir:
Björgvin Páll Gústavsson, Valur (284/26).
Viktor Gísli Hallgrímsson, FC Barcelona (71/2).
Einar Baldvin Baldvinsson, Afturelding (0/0).

Aðrir leikmenn:
Andri Már Rúnarsson, HC Erlangen (4/4).
Arnar Freyr Arnarsson, MT Melsungen (104/109).
Bjarki Már Elísson, One Veszprém (126/419).
Einar Þorsteinn Ólafsson, HSV Hamburg (24/7).
Elliði Snær Viðarsson, Vfl Gummersbach (61/134).
Elvar Örn Jónsson, SC Magdeburg (90/205).
Gísli Þorgeir Kristjánsson, SC Magdeburg (72/159).
Haukur Þrastarson, Rhein-Neckar Löwen (45/63).
Janus Daði Smárason, Pick Szeged (98/176).
Kristján Örn Kristjánsson, Skanderborg (37/72).
Orri Freyr Þorkelsson, Sporting (29/91).
Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten Schaffhausen (55/165).
Ómar Ingi Magnússon, SC Magdeburg (91/328).
Teitur Örn Einarsson, Vfl Gummersbach (45/44).
Viggó Kristjánsson, HC Erlangen (70/215).
Ýmir Örn Gíslason, Göppingen (105/48).
Þorsteinn Leó Gunnarsson, FC Porto (18/36).

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -