Viggó Kristjánsson lék með HC Erlangen á nýjan leik í kvöld eftir nokkurra vikna fjarveru vegna meiðsla. Endurkoma hans nægði liðinu ekki að þessu sinni því það tapaði í heimsókn til GWD Minden, 30:29, jafnri viðureign.
Viggó skoraði sex mörk og gaf sjö stoðsendingar fyrir HC Erlangen. Andri Már Rúnarsson skoraði fjögur mörk og gaf eina stoðsendingu.
Erlangen er nú komið í 14. sæti af 18 liðum deildarinnar með 11 stig. Minden er tveimur stigum á eftir.
Stóðust Lemgo ekki snúning
Ýmir Örn Gíslason og liðsfélagar í Göppingen töpuðu fyrir sputnikliði þýsku deildarinnar, Lemgo, á heimavelli, 33:26. Skemmst er frá því að segja að Lemgo-liðið var með yfirhöndina frá byrjun til enda.
Ýmir Örn skoraði eitt mark í leiknum og var einu sinni vikið af leikvelli.
Lemgo fór upp í annað sæti deildarinnar með 25 stig eftir 16 leiki. Göppingen situr í 10. sæti.



