Ekki tókst landsliði Grænhöfðaeyja að greiða leið íslenska landsliðsins í átta liða úrslit á heimsmeistaramótinu í handknattleik karla í dag. Grænhöfðeyingar töpuðu með 12 marka mun fyrir Ungverjum með 12 marka mun, 42:30, í lokaumferð milliriðlakeppninnar í Scandinavium í dag.
Ungverska liðið var mikið sterkara í leiknum við Grænhöfðaeyjar. Þeir voru með yfirhöndina frá upphafi til enda og voru m.a. sjö mörkum yfir í hálfleik, 22:15.
Þar með er ljóst að Ungverjar verða fyrir ofan íslenska landsliðið í milliriðli tvö á mótinu þótt Ísland vinni leikinn við Brasilíu sem hefst klukkan 17. Ástæðan er sú að Ungverjar unnu leik þjóðanna fyrir rúmri viku í Kristianstad, 30:28, og standa þar með betur að vígi í innbyrðis leikjum.
Portúgal gert einnig komist upp fyrir Ísland og Ungverjland takist portúgalska liðinu að leggja Svía í síðasta leik riðilsins í kvöld.
HM 2023 – Milliriðlar, leikjadagskrá, staðan