Sömu leikmenn leika fyrir Íslands hönd í síðari viðureign Íslands og Svíþjóðar í Kaplakrika í dag og tóku þátt í fyrri vináttuleiknum í N1-höllinni á fimmtudagskvöld. Janus Daði Smárason verður áfram utan hópsins vegna axlarmeiðsla sem hafa plagað hann frá viðureigninni við Króata um bronsverðlaunin á Evrópumótinu 1. febrúar.
Viðureign karlalandsliða Íslands og Svíþjóðar hefst í Kaplakrika klukkan 17. Bein útsending verður á vegum RÚV. Einnig verður textalýsing á handbolti.is.
Nokkrir dagar eru liðnir síðan uppselt varð á leikinn.
Svíar höfðu betur í viðureigninni á fimmtudagskvöld, 35:33.
Markverðir:
Björgvin Páll Gústavsson, Valur (297/26).
Viktor Gísli Hallgrímsson, FC Barcelona (84/2).
Aðrir leikmenn:
Arnar Freyr Arnarsson, MT Melsungen (117/122).
Einar Þorsteinn Ólafsson, HSV Hamburg (35/8).
Elliði Snær Viðarsson, Vfl Gummersbach (74/178).
Elvar Örn Jónsson, SC Magdeburg (97/219).
Gísli Þorgeir Kristjánsson, SC Magdeburg (85/208).
Haukur Þrastarson, Rhein-Neckar Löwen (57/79).
Orri Freyr Þorkelsson, Sporting Lissabon (42/148).
Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten Schaffhausen (68/214).
Reynir Þór Stefánsson, MT Melsungen (2/2).
Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kolstad (87/232).
Stiven Tobar Valencia, Benfica (23/29).
Teitur Örn Einarsson, Vfl Gummersbach (57/50).
Viggó Kristjánsson, HC Erlangen (83/253).
Ýmir Örn Gíslason, Göppingen (118/48).
Þorsteinn Leó Gunnarsson, FC Porto (26/40).



