- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Viðureign Fram og KA/Þór frestað til morguns – leikir Fram skarast

- Auglýsing -

Vegna ófærðar hefur leik Fram og KA/Þórs sem fram átti að fara í dag í síðustu umferð Olísdeildar kvenna verið frestað til morguns. Stefnt er á að leikurinn fari fram í Lambhagahöll Framara og að flautað verði til leiks klukkan 17.

Vegna óveðurs síðustu daga eru m.a. Öxnadalsheiði og Holtavörðuheiði lokaðar í morgunsárið.

Leikir Fram skarast

Reyndar skarast leikur Fram og KA/Þórs við viðureign Gróttu og Fram 2 í Grill 66-deild kvenna sem á að hefjast klukkan 18 í lokaumferð deildarinnar. Nokkrir leikmenn Olísdeildarliðs Fram er gjaldgengir með Fram 2.

Í gær var viðureign Vals og ÍBV í síðustu umferð Olísdeildar kvenna verið seinkað um viku.

Leikir Olísdeildar kvenna í dag:
ÍR – Selfoss.
Haukar – Stjarnan.
– Flautað verður til leiks klukkan 14.
– Leikirnir tveir verða sendir út á Handboltapassanum.

Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -