- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Er auðvitað stoltur af þeim árangri

- Auglýsing -

„Tilfinningin er frábær að vera búnir að landa þessum titli. Það er ótrúlega gaman að upplifa þetta með strákunum, sem eru margir að vinna sinn fyrsta titil. Félagið hafði ekki orðið bikarmeistari í tólf ár. Það var gaman að landa þessum,“ sagði Gunnar Magnússon, þjálfari karlaliðs Hauka, eftir að liðið lagði ÍR í bikarúrslitum í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum í kvöld.

Gunnar var ráðinn fyrir tímabilið og fer ekki í grafgötur með það að honum hafi verið tjáð að þess væri vænst að Haukar ynnu til titla undir hans stjórn.


„Já, það var bara þannig. Ég var fenginn hingað og það var klárt mál að félagið vildi vinna titla. Ég kom hingað til að vinna titla og það er gott að sá fyrsti er kominn í hús.

Við erum að brjóta ákveðinn múr núna þar sem við erum að ná í fyrsta titilinn saman. Ég er glaður með það. Það er mikið hungur í baklandinu og öllu félaginu að snúa þessu við og fara að vinna titla,“ sagði Gunnar við handbolta.is eftir leikinn.

Heppinn að hafa gott fólk í kringum mig

Um mikinn persónulegan sigur var einnig að ræða fyrir hann þar sem Gunnar hefur nú orðið bikarmeistari sem þjálfari þriggja mismunandi karlaliða. Hann varð einnig bikarmeistari sem þjálfari Aftureldingar og ÍBV.

„Ég er stoltur af því. Ég er ótrúlega heppinn. Maður vinnur þetta ekki einn. Ég er heppinn að hafa gott fólk í kringum mig. Bæði í Vestmannaeyjum og Mosfellsbænum hafði ég ótrúlega gott fólk með mér og það er sama hér.


Þetta er auðvitað árangur að verða bikarmeistari með þremur mismunandi liðum. Ég er stoltur af þeim árangri,“ sagði Gunnar Magnússon við handbolta.is.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -