- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Ethel Gyða kölluð út í hasti rétt fyrir brottför til Svartfjallalands

- Auglýsing -

Ethel Gyða Bjarnasen markvörður Fram var kölluð inn í landsliðið í handknattleik kvenna í kvöld. Ethel Gyða, sem er nýliði í landsliðinu, kemur inn í stað Hafdísar Renötudóttur sem fékk boltann á höfuðið í sigurleiknum við Svartfellinga á Ásvöllum í kvöld. Hafdís verður eftir heima en ástand hennar verður nánar skoðað á morgun, eftir því sem handbolti.is kemst næst.

Ferðast í nótt

Landsliðið fer með næturflugi til Póllands rétt fyrir klukkan eitt í nótt. Millilent verður í Póllandi en þaðan flogið í fyrramálið til Podgorica í Svartfjallalandi þar sem síðari viðureign Íslands og Svartfjallalands í undankeppni EM fer fram á sunnudaginn og hefst klukkan 17 að íslenskum tíma.

Óvissa með Katrínu Tinnu og Hafdísi

Alexandra Líf fer einnig með

Katrín Tinna Jensdóttir, sem einnig fékk höfuðhögg í leiknum í kvöld, verður einnig eftir heima. Alexandra Líf Arnarsdóttir, sem var í hópnum í kvöld, mun leysa Katrínu Tinnu af í viðureigninni ytra.

Áætlað er að íslenska landsliðið verði komið til Podgorica klukkan 13 á morgun. Handbolti.is óskar hópnum góðrar ferðar.


Hópurinn sem fer út nótt er skipaður eftirtöldum leikmönnum:

Markverðir:
Ethel Gyða Bjarnasen, Fram (0/0).
Sara Sif Helgadóttir, Haukum (22/0).
Aðrir leikmenn:
Alexandra Líf Arnarsdóttir, Haukum, (6/3).
Andrea Jacobsen, HSG Blomberg-Lippe, (67/116).
Dana Björg Guðmundsdóttir, Volda, (20/47).
Elín Klara Þorkelsdóttir, IK Sävehof, (34/131).
Elín Rósa Magnúsdóttir, HSG Blomberg-Lippe, (39/80).
Elísa Elíasdóttir, Val, (30/27).
Katrín Anna Ásmundsdóttir, Fram, (21/28).
Lovísa Thompson, Val, (38/72).
Matthildur Lilja Jónsdóttir, ÍR, (8/1).
Rakel Oddný Guðmundsdóttir, Haukum, (11/6).
Sandra Erlingsdóttir, ÍBV, (46/192).
Sara Dögg Hjaltadóttir, ÍR, (4/12).
Sonja Lind Sigsteinsdóttir, Haukum, (4/0).

  • Díana Dögg Magnúsdóttir, HSG Blomberg-Lippe (72/97), kemur til móts við hópinn í Podgorica.

Undankeppni EM kvenna ”26: Úrslit leikja

A-landslið kvenna – fréttasíða.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -