- Auglýsing -
- Auglýsing -

Eva Hrund styrkir þjálfarateymi HK

Eva Hrund Harðardóttir aðstoðarþjáfari kvennaliðs HK. Mynd/HK
- Auglýsing -

Eva Hrund Harðardóttir hefur skrifað undir samning við HK þess efnis að verða aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna í handknattleik næsta árið. HK leikur í Grill 66-deildinni í vetur.

„Eva Hrund hefur þjálfað hjá HK undanfarin ár og erum við afar ánægð að fá hana inn í meistaraflokkinn líka,“ segir m.a. í tilkynningu handknattleiksdeildar HK.

Fyrsti leikur HK í Grill 66-deildinni verður sunnudaginn 15. september á heimavelli gegn Fram2.

Hilmar Guðlaugsson tók við þjálfun kvennaliðs HK fyrir ári eftir að liðið féll úr Olísdeildinni.

Leikjadagskrá Grill 66-deilda.

Þjálfarar – helstu breytingar 2024

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -