- Auglýsing -
Silja Arngrimsdóttir Müller, markvörður, hefur sagt skilið við Ervópubikarmeistara og Íslandsmeistara Vals. Neistin í Þórshöfn segir þau tíðindi í kvöld að Silja hafi gengið til liðs við uppeldisfélag sitt að lokinni ársveru hjá Val.
Silja var annar af tveimur markvörðum Vals á síðustu leiktíð en stóð talsvert í skugganum af Hafdísi Renötudóttur sem átti framúrskarandi leiktíð með Val. Silja lék meira með Val2 í Grill 66-deildinni.
Á síðasta tímabili var Silja kölluð inn í æfingahóp færeyska landsliðsins. Hún varð einnig fyrsta færeyska handknattleikskonan til þess að vinna til gullverðlauna í Evrópukeppni félagsliða.
Konur – helstu félagaskipti 2025
- Auglýsing -