Riðlakeppni Evrópudeildarinnar í handknattleik karla hófst í kvöld. Alls taka 32 lið þátt í fyrstu umferðinni. Þeim er skipt í átta fjögurra liða riðla. Leikið verður heima og heiman. Síðasta umferðin verður þriðjudaginn 2. desember en áður verður leikið 21.október, 11., 18., og 25. nóvember auk leikjanna í kvöld. Tvö efstu lið hvers riðils komast áfram í 16-liða úrslit sem einnig verða leikin í riðlum í febrúar og mars á næsta ári.
Íslands- og bikarmeistarar Fram tala þátt í riðlakeppni Evrópudeildar og eiga sæti í D-riðli. Auk þess koma íslenskir handknattleiksmenn við sögu hjá nokkrum öðrum liðum í keppninni.
Hér fyrir neðan eru úrslit 1. umferðar. Stuttlega farið yfir hvað íslensku handknattleiksmennirnir gerðu með liðum sínum, að leikmönnum Fram undanskildum.
A-riðill:
AHC Potaissa Turda – Bidasoa Irun 33:34 (16:16).
Flensburg-Handewitt – Saint Raphaël 32:30 (16:15).
B-riðill:
Montpellier – THW Kiel 28:30 (9:16).
Ostrivia Ostrow – BSV Bern 32:28 (18:14).
C-riðill:
BM Granollers – Skanderborg 26:31 (13:18).
-Kristján Örn Kristjánsson, Donni, skoraði 4 mörk og gaf tvær stoðsendingar fyrir Skanderborg.
Grosist Slovan – CS Minaur Baia Mare 35:29 (20:15).
D-riðill:
Fram – FC Porto 26:38 (11:16).
-Þorsteinn Leó Gunnarsson skoraði 4 mörk fyrir FC Porto.
Elverum – HC Kriens-Luzern 31:34 (14:18).
-Tryggvi Þórisson skoraði ekki mark fyrir Elverum.
E-riðill:
MT Melsungen – Benfica 28:26 (14:12).
-Arnar Freyr Arnarsson skoraði 3 mörk fyrir Melsungen.
-Reynir Þór Stefánsson var ekki í leikmannahópi Melsungen.
-Stiven Tobar Valencia skoraði 3 mörk fyrir Benfica.
FTC-Green Collect – HF Karlskrona 31:29 (16:15).
-Arnór Viðarsson skoraði 3 mörk fyrir HF Karlskrona og gaf 3 stoðsendingar.
F-riðill:
HC Vardar – MRK Sesvete 34:29 (19:15).
Fenix Toulouse – IFK Kristianstad 28:30 (11:15).
-Einar Bragi Aðalsteinsson skorað 6 mörk og gaf tvær stoðsendingar fyrir IFK Kristianstad.
G-riðill:
Fredericia HK – Hannover-Burgdorf 29:31 (11:15).
-Heiðmar Felixson er aðstoðarþjálfari Hannover-Burgdorf.
-Hlynur Leifsson var eftirlitsmaður EHF á leiknum.
Tatran Presov – IK Sävehof 30:30 (18:13).
-Birgir Steinn Jónsson skoraði ekki mark fyrir IK Sävehof.
H-riðill:
Kadetten Schaffhausen – Ademar León 30:22 (15:11).
-Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 9 mörk fyrir Kadetten Schaffhausen.
RK Nexe – RK Partizan 30:22 (16:8).