Nýkrýndur Evrópumeistari í handknattleik karla og landsliðsmarkvörður spænska landsliðsins í handknattleik voru með Bjarka Má Elíssyni landsliðmanni í handknattleik í fámennum hópi stuðningsfólks íslenska karlalandsliðsins í fótbolta á Szouza Ferenc-leikvanginum í Búdapest í gærkvöld í sigrinum frækna á ísraelska landsliðinu í undanúrslitum um sæti á Evrópumótinu í sumar, 4:1.
Bjarki Már hefur drifið með sér á leikinn handboltamennina Rodrigo Corrales landsliðsmarkvörð Spánar og Hugo Descat hornamann Evrópumeistaraliðs Frakka á EM í janúar.
Corrales og Descat klæddust búningi íslenska landsliðsins í handknattleik í áhorfendastúkunni og kættust mjög með Bjarka og fleirum þegar íslenska landsliðið raðaði inn sigurmörkum á Szouza Ferenc-knattspyrnuvellinum.
Corrales og Descat eru samherjar Bjarka hjá Telekom Veszprém.
Leifur Grímsson eiginmaður Elsu Hrannar Reynisdóttur, móður Bjarka Más, vakti athygli á þessu á X eins og sést hér að neðan.
Sjá þessa kappa fagna öðru marki Íslands í Budapest. Bjarki Már með Veszprém félaga sína; Rodrigo Corrales landsliðsmarkmann Spánar og Hugo Descat franska Evrópumeistarann í íslensku landsliðstreyju Bjarka Más. Áfram Íslands pic.twitter.com/30kBe2aPP4
— Leifur Grímsson (@lgrims) March 21, 2024