- Auglýsing -

Eyjakona fer frá FH til Stjörnunnar

Aníta Björk Valgeirsdóttir er mætt í búning Stjörnunnar. Mynd/Stjarnan
- Auglýsing -


Handknattleiksdeild Stjörnunnar hefur tryggt sér krafta Anítu Bjarkar Valgeirsdóttur til næstu tveggja ára. Hún kemur til félagsins eftir þriggja ára veru hjá FH.


Aníta er uppalin í Vestmannaeyjum og spilaði fyrir ÍBV upp alla yngri flokkana, áður en hún flutti sig um set árið 2022. Hún fæddist árið 2002 og var í yngri landsliðum Íslands, auk þess að leika fyrir ÍBV bæði í Olísdeildinni og í Evrópubikarkeppninni tímabilið 2021 – 2022.

„Mjög spennandi leikmaður sem við erum að fá til okkar, sterk í stöðunni einn á einn og með góða yfirsýn sem miðjumaður. Aníta er góð viðbót við okkar lið, ánægjulegt að fá Eyjakonu til okkar því leikmenn sem koma þaðan gefa alltaf 100% í leikinn, það kann ég vel að meta,“ er haft eftir Patreki Jóhannessyni þjálfara Stjörnunnar í tilkynningu í morgun.


Konur – helstu félagaskipti 2025

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -