- Auglýsing -
Handboltapeyjar úr ÍBV, fæddir 2009 og 2010, höfnuðu í 5. sæti á alþjóðlegu móti sem hófst í Dudelange í Lúxemborg í gærmorgun og lauk síðdegis í dag. ÍBV-liðið vann fimm af sex viðureignum sínum á mótinu sem 16 lið frá 11 löndum voru þátttakendur í. Sigurmundur Gísli Unnarsson markvörður var valinn í lið mótsins.
Í síðasta leik mótsins í dag, gegn heimaliðinu HB Diddeleng, vann ÍBV með átta marka mun. Grátlega svekkjandi naumt tap fyrir franska liðinu Metz í morgun varð til þess að ÍBV komst ekki í undanúrslit. Var það jafnframt eina tap peyjanna. Eftir tapið tók við sigurleikur á tékknesku liði áður en heimaliðið réði ekki við ÍBV-liðið í viðureigninni um 5. sætið.
- Auglýsing -


