- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Fær ekki að spila vegna blóðþynningarlyfja

- Auglýsing -

Simon Hald, línumaður og varnartröll þrefaldra meistara Danmerkur, þarf að bíða enn um sinn eftir því að komast aftur á handboltavöllinn. Hald fann fyrir hjartsláttartruflunum í leik gegn Íslandi í undanúrslitum EM 2026 í Herning í lok janúar og hefur ekki getað spilað síðan.

Í samtali við TV2 Nord segir Hald að hann megi ekki spila á meðan hann er á blóðþynningarlyfjum, sem Hald var settur á vegna gáttatifs í hjartanu.

Hjartsláttartruflanir en ekki höfuðmeiðsli hjá Hald


„Það gengur mjög vel. Ég finn ekki fyrir neinu þannig að það er svolítið skrítið að sitja uppi í stúku og horfa á leiki. Ég er ekki enn búinn að finna fyrir neinum verkjum en við komumst að samkomulagi við læknana sem við höfum ráðfært okkur við að nota lyfin í fullu samræmi við leiðbeiningarnar sem eru gefnar,“ segir hann.

Hald, sem er leikmaður Aalborg Håndbold í heimalandinu, segist þurfa að vera á lyfjunum í tvær vikur til viðbótar. Eftir það megi hann hefja leik að nýju af fullum krafti.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -