Danir reyndust of stór biti fyrir færeyska landsliðið í viðureign liðanna í síðari umferð milli riðils þrjú á heimsmeistaramóti 21 árs landsliða í Katowice í Póllandi í dag. Færeyingar töpuðu sínum fyrsta leik á mótinu, lokatölur 41:32, fyrir Dani sem mæta Norðmönnum á fimmtudaginn í átta liða úrslitum. Danska liðið er taplaust á mótinu, hefur unnið allar fimm viðureignir sínar.
Léku lítið sem ekkert
Hugsanlega hafa Færeyingar ekki gert sér miklar vonir um sigur því helstu tromp þeirra komu annað hvort mjög lítið eða ekkert við sögu. Óli Mittún lék aðeins með í tæpar tvær mínútur og línumaðurinn Ísak Vedelsbøl steig ekki inn á leikvöllinn. Svipaða sögu er að segja af markverðinum Aleksandar Lacok. Hann spreytti sig á einu vítaksti en sat að öðru leyti á varamannabekknum.
Mæta Slóvenum
Færeyingar leika við Slóvena í átta liða úrslitum á fimmtudaginn. Slóvenska liðið vann milliriðil eitt eftir öruggan sigur á Ungverjum í dag, 37:31. Norðmenn gerðu jafntefli við Austurríkismenn í morgun, 27:27, og höfnuðu þar með í öðru sæti milliriðils eitt og verða þar með að mæta ógnarsterku liði Danmerkur.
Fljótlega kom í ljós í dag að danska liðið var nokkuð sterkara en það færeyska. Jafnt var framan af en upp úr miðjum hálfleik skildi leiðir. Sóknarþungi Dana var mikill auk þess sem þeim tókst vel að nýta hæð sína umfram færeyska liðið sem að uppistöðu til er skipað frekar lávöxnum piltum.
Í síðari hálfleik voru Danir alltaf skrefinu á undan og unnu þar af leiðandi öruggan sigur, 41:32.
Óla Jákup Gaard Olsen var markahæstur í færeyska liðinu með sex mörk og Búi Poulsen var næstur með fjögur mörk.
Magnus Storgaard skoraði níu mörk fyrir Dani og Anton Houe sjö.
HMU21-’25: Milliriðlar, úrslit, staðan, allir leikir