-Auglýsing-

Færeyska landsliðið sem mætir Íslandi – Stefnt á hópferð til Þórshafnar

- Auglýsing -

Natasja Hammer leikmaður Stjörnunnar er á meðal 16 leikmanna sem Claus Leth Mogensen og Simon Olsen þjálfarar færeyska kvennalandsliðsins hafa valið til þátttöku í tveimur síðustu leikjum landsliðsins í undankeppni Evrópumótsins 8. og 12. apríl. Fyrri leikurinn verður gegn íslenska landsliðinu í Þórshöfn. Færeyska landsliðið stendur vel að vígi í riðlinum, situr í öðru sæti með fjögur stig.
Þrjár af 16 konum færeyska landsliðshópsins leika með færeyskum félagsliðum.

HSÍ stendur fyrir hópferð til Færeyja á viðureign landsliða Íslands og Færeyja. Um er að ræða einnar nætur pakkaferð. Farið verður út á leikdag, 8. apríl, og komið heim daginn eftir.
Flogið verður með Icelandair beint til Færeyja 8. apríl, miði á Færeyjar-Ísland, gist í eina nótt á Djurhuus Hotel og flogið til baka í beinu flugi 9. apríl.
Rútuferð til og frá flugvelli í Færeyjum er innifalið.
Verð er 125.000 kr. en möguleiki er að framlengja ferð.
Nánari upplýsingar veitir Daníel Franz á netfanginu [email protected].
Natasja Hammer leikmaður Stjörnunnar og færeyska landsliðsins. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð

Færeyski landsliðshópurinn:

Markverðir:
Rakul Wardum, Ringkøbing Håndbold.
Annika Fríðheim Petersen, EH Aalborg.
Aðrir leikmenn:
Elsa Egholm, Ajax København.
Jana Mittún, Viborg HK.
Maria Pálsdóttir Nólsoy, HH Elite.
Marita Mortensen, HØJ.
Lív Bentsdóttir Zachariasen, Ajax København.
Súna Krossteig Hansen, Skanderborg Håndbold.
Natasja Hammer, Stjarnan.
Brynhild Pálsdóttir, BK Ydun.
Lív Sveinbjørnsdóttir Poulsen, VÍF.
Anna Elisabeth Halsdóttir Weyhe, H71.
Rannvá Olsen, Ejstrup/Hærvejen.
Pernille Brandenborg, Storhamar.
Vár Bentsdóttir Zachariasen, Ajax København.
Bjarta Osberg Johansen, Kyndil.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -