Færeyska landsliðið í handknattleik karla, skipað leikmönnum 19 ára og yngri, fékk höfðinglegar móttöku í Þórshöfn í gær eftir að liðið kom heim eftir að hafa náð þeim sögulega árangri að tryggja sér sæti í lokakeppni EM20 ára og yngri á næsta ári. Liðið vann B-hluta EM sem fram fór í Varna í Búlgaríu en B-keppnin fór fram í þremur hlutum.
Eins og handbolti.is greindi frá á sunnudaginn er þetta í fyrsta sinn sem færeyskt karlalandslið vinnur sér sæti á meðal 16 bestu landsliða í Evrópukeppni í handknattleik.
Piltarnir voru hylltir við ráðhúsið í Þórshöfn þar sem borgarstjórinn, Heðin Mortensen, forseti íþróttasambands Færeyja, Elin Heðinsdóttir Joensen, og Gunn Ellefsen, formaður handknattleiksambands Færeyja, tóku á móti þeim ásamt fjölmennum hópi fólks eins og sjá má á myndum sem eru af Facebook síðu Tórshavnar kommunu.