- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

„Fannst við eiga þetta svo innilega skilið“

- Auglýsing -

Elísa Elíasdóttir lék frábærlega í vörn íslenska landsliðsins þegar liðið vann glæsilegan 28:27 sigur á Svartfjallalandi í undankeppni EM 2026 á Ásvöllum í kvöld. Elísa skoraði auk þess eitt mark á mikilvægum tímapunkti seint í leiknum og fiskaði tvö víti.

„Tilfinningin er ótrúlega góð. Vá, mér fannst við eiga þetta svo innilega skilið. Mér fannst við eiginlega vera miklu betri allan leikinn. Þær eru með ótrúlega gott lið. Við sýndum alvöru karakter í dag,“ sagði Elísa í samtali við handbolta.is eftir leikinn.

Stórkostlegur sigur á Svartfellingum

Spurð hvað hafi skilað sigrinum í kvöld sagði hún:

„Bara karakterinn í vörninni. Svo var Elín Klara á eldi í dag og vörnin var líka á eldi.“

Töluðum sérstaklega um það fyrir leikinn

Íslenska liðið sýndi mikinn stöðugleika í sínum leik í kvöld og hélt haus allan tímann. Er það eitthvað sem liðið hefur farið sérstaklega yfir?

„Já, eða svona. Við töluðum sérstaklega um það fyrir leikinn í dag að við ætluðum að sýna betri karakter í dag en í seinasta leik á móti þeim. Mér fannst við heilt yfir ná því mjög vel,“ útskýrði Elísa.

Að endingu sagði hún sigurinn gefa liðinu mikið í baráttunni um sæti á Evrópumótinu síðar á árinu.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -