-Auglýsing-

Fékk heilablóðfall öðru sinni

- Auglýsing -

Þýski þjálfarinn Jaron Siewert hefur opinberað að hann hafi fengið heilablóðfall í október síðastliðnum, aðeins tveimur mánuðum eftir að hann var látinn taka pokann sinn hjá Þýskalandsmeisturum Füchse Berlín.

Siewert gerði Füchse að meisturum á síðasta tímabili og kom það því flestum í opna skjöldu þegar hann var rekinn snemma á yfirstandandi tímabili. Var þetta í annað sinn sem Siewert fær heilablóðfall en það gerðist sömuleiðis árið 2022.


„Tveimur mánuðum eftir að ég var rekinn fékk ég heilablóðfall og þá náði ég botninum. Ég efaðist um allt. Læknarnir fullvissuðu mig um að þetta hafi ekki verið vegna streitu.

Þetta hefði annars gerst á meðan tímabilinu stæði eða í síðasta lagi í lokaumferð þýsku deildarinnar gegn Rhein-Neckar Löwen,“ sagði hann í samtali við þýsku streymisveituna Dyn.

Siewert er aðeins 32 ára gamall en læknarnir ráku ástæðuna fyrir síðara heilablóðfalli hans til blóðþynnandi lyfja sem Siewert hafði innbyrt allt frá því að hann fékk fyrra heilablóðfallið.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -