- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Fékk nóg af akstri í bæinn: „Ótrúlega gaman að enda þetta svona“

- Auglýsing -

„Líðanin er ótrúlega góð. Það er ótrúlega gaman að ná að enda þetta svona, á besta mögulega hátt,“ segir Hilmar Guðlaugsson, fráfarandi þjálfari kvennaliðs HK, í samtali við handbolta.is. Undir stjórn Hilmars vann HK Grill 66 deildina og leikur því í Olísdeildinni á næsta tímabili.

Í janúar var tilkynnt að hann myndi láta af störfum og viðurkennir Hilmar að tilfinningarnar séu blendnar þegar litið er til þess að hann muni ekki taka slaginn með liðinu á meðal þeirra bestu.

Gaman að geta skilið við liðið á þessum stað

„Það eru auðvitað blendnar tilfinningar. Ég er búinn að vera með liðið í þrjú ár og það hefur verið stígandi í þessu. Markmiðið sem við settum okkur fyrir þremur árum var að koma liðinu upp og það tókst. Það er auðveldara að skilja við liðið á besta mögulega stað úr því maður er að hætta.

Að sama skapi er það, kannski ekki erfitt, en blendnar tilfinningar. Ég tók þessa ákvörðun í desember, að ég ætlaði að hætta eftir tímabilið. Eftir að hafa tekið hana er þetta náttúrlega besta mögulega staðan og gaman að geta skilið við liðið á þessum stað,“ segir Hilmar.

Spurður hvers vegna hann hafi ákveðið að láta staðar numið sem þjálfari HK segir Hilmar ástæðuna einfalda.

Fyrst og fremst að hætta að keyra

„Það er nú bara einfaldlega vegna þess að ég bý á Selfossi og er að keyra á milli. Það fer rosalega mikill tími í þetta. Ég er að vinna með sem kennari og þetta eru langir dagar þar sem ég er mikið frá fjölskyldu og börnum.

Aksturinn dregur aðeins af manni. En þetta er búinn að vera ótrúlega skemmtilegur tími og flottur hópur sem ég er búinn að vera að þjálfa. Það hefur verið virkilega gaman en fyrst og fremst er það bara að hætta að keyra!“


Hann vill gjarna halda áfram í þjálfun en slíkt starf þyrfti þá að vera nær heimahögunum.

„Ég hætti ekkert í þjálfun en ég er ekki að fara að keyra í bæinn til þess að fara að þjálfa. Ef mér býðst eitthvað hérna á Selfossi þá þigg ég það. Ég er alveg opinn fyrir því. Ég á börn í félaginu og svona,“ segir Hilmar Guðlaugsson hreinskilinn við handbolta.is.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -