- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Félagaskiptaglugginn: Harpa María til Fram, Lúðvík frá Gróttu og fleira

Harpa María Friðgeirsdóttir hefur fengið félagaskipti frá TMS Ringsted til Fram. Ljósmynd/Jan Berner Rømer
- Auglýsing -

Handknattleikskonan Harpa María Friðgeirsdóttir hefur á ný gengið til liðs við Fram. Þetta kemur fram á félagaskiptasíðu á vef HSÍ. Frestur til félagaskipta rennur út á miðnætti.

Harpa María flutti til Danmerkur síðasta sumar vegna náms og hefur síðustu mánuði leikið með TMS Ringsted á Sjálandi. TMS Ringsted á sæti í næst efstu deild danska handknattleiksins.


Fleiri félagaskipti voru skráð hjá HSÍ í dag áður en félagaskiptaglugganum var lokað. Hér fyrir neðan er nokkur þeirra:

  • Lúðvík Thorberg B. Arnkelsson til Fram frá Gróttu.
  • Hinrik Hugi Heiðarsson til Hauka frá ÍBV – að láni út leiktíðina.
  • Þorgils Jón Svölu Baldursson til Vals frá HK Karlskrona.*
  • Einar Sverrisson til FH frá Selfossi.*
  • Patrekur Þór Guðmundsson Öfjörð til Stjörnunnar frá Selfossi – að láni úr leiktíðina.
  • Kamil Pedryc til Zagłębie Lubin frá KA.*
  • Felipe Condeixa til Harðar frá Spáni.
  • Lubomir Ivanytsia til Harðar frá Póllandi.
  • Oliver Rabek til Harðar frá Kúveit.
  • Marek Lesansky til Harðar frá Tékklandi.
  • Shuto Takenaka til Harðar frá Japan.
  • Tugberk Catkin til Tyrklands frá Herði.
  • Christos Kederis til Grikklands frá Herði.
  • Dorde Colovic til Griklands frá Herði.


*Áður hefur verið sagt frá félagaskiptum Einars, Þorgils Jóns og Pedryc.

Pólverjinn hefur kvatt KA og haldið heim

Þorgils Jón klár í slaginn með Val frá 1. febrúar

Einar tekur fram og skóna og gengur til liðs við FH

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -