Alec Smit, hollenskur hægri hornamaður danska stórliðsins Aalborg Håndbold, varð fyrir því óláni að slíta krossband í hné í 34:24 sigri á HØJ Elite í dönsku úrvalsdeildinni um liðna helgi. Smit er var fenginn til liðs við Aalborg vegna meiðsla annars hægri hornamanns, Danans Patrick Wiesmach.
Wiesmach meiddist alvarlega á öxl í október síðastliðnum og fékk Aalborg Smit til liðs við sig til þess að fylla skarð hans.
Eins og er iðulega tilfellið þegar leikmenn slíta krossband má Smit vænta þess að vera frá keppni næstu 9-12 mánuðina. Hann er 26 ára gamall og samdi við Aalborg út yfirstandandi tímabil.
Eftir stendur því einungis einn leikfær hægri hornamaður hjá Aalborg, Norðmaðurinn reyndi Kristian Bjørnsen, sem hyggst leggja skóna á hilluna að loknu tímabilinu.




