- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Fer ekki til Kaíró til þess að skíttapa

- Auglýsing -

Ef friður gefst leikur íslenska karlalandsliðið í handknattleik tvo vináttuleiki við Afríkumeistara Egyptalands í Kaíró um miðjan maí. Eins og kom fram á handbolti.is í gær endurgjalda Egyptar heimsóknina með komu hingað til lands í janúar á næsta ári til tveggja leikja áður en flautað verður til leiks á heimsmeistaramótinu í Þýskalandi.

Íslenska landsliðið mætir Egyptum tvisvar ytra í maí

Reiknar með blönduðum hóp

Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari segist reikna með að fara með blandað lið til Kaíró, þ.e. hluti af hópnum verði skipaður þeim leikmönnum sem valinn var fyrir leikina við Svía síðar í þessum mánuði. Aðrir leikmenn verða vafalaust ekki eins leikreyndir.

Getur staðið misvel á hjá mönnum

„Ég ætla samt ekki að vera með lið sem mun skíttapa. Ég mun mæta með gott lið enda eru Egyptar með eitt af átta bestu landsliðum heims. Ég þekki það af eigin raun að þegar svona langt er liðið á tímabilið þá eru leikmenn í ýmsum sporum, bæði líkamlega og andlega. Eins getur staðið misjafnlega vel á hjá liðum leikmanna. Áður en hópurinn verður valinn mun ég taka stöðuna á stórum hóp leikmanna vegna þess að ég mun alveg örugglega skoða vel og þreifa mig áfram með í viðureignunum við Egypta í maí,“ sagði Snorri Steinn í viðtali við handbolta.is.

Verðum að fá B-landslið

„Ég hef áður sagt að ef við ætlum að taka alvöru skref fram á við og halda okkur í fremstu röð þá verðum við að fá B-landslið og stækka hópinn. Vissulega hefur það með peninga að gera. Á hinn bóginn erum við með stóran hóp af strákum sem leika erlendis sem erfitt er að gefa tækifæri í mótsleikjum og þeim fáu gluggum sem opnir eru fyrir A-landsliðið. Nauðsynlegt er að skapa þeim vettvang.

Við erum með sterkan kjarna í A-landsliðinu sem hefur gert það gott og erfitt er að hrófla mikið við. Við verðum einnig á sama tíma að stækka hópinn og veita mönnum aðhald. B-landsliðið er lykilatriði í þeim efnum,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari karla í handknattleik við handbolta.is.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -