Haukar og ÍR eigast við í úrslitaleik bikarkeppni karla í handknattleik í dag í Kuehne+Nagel höllinni, Ásvöllum, á morgun, laugardag. Flautað verður til leiks klukkan 18.30.
Haukar hafa unnið bikarkeppni karla í sjö skipti, síðasta 2014 í úrslitaleik við ÍR í Laugardalshöll. Ekki gat munað minna á liðunum þegar upp var staðið, 22:21. Haukar hafa leikið níu sinnum til úrslita, síðast 2023.
ÍR leikur í fimmta sinn til úrslita í bikarkeppni HSÍ í karlaflokki. Tvisvar hafa ÍR-ingar orðið bikarmeistarar, 2005 og 2013. Síðast lék ÍR til úrslita fyrir 12 árum.
Hér fyrir neðan eru úrslit úrslitaleikja Hauka og ÍR í gegnum tíðina.
Úrslitaleikir karlaliðs ÍR í bikarkeppninni:
1979: Víkingur – ÍR 20:13.
2005: ÍR – HK 38:32.
2013: ÍR – Stjarnan 33:24.
2014: Haukar – ÍR 22:21.
Úrslitaleikir karlaliðs Hauka í bikarkeppninni:
1980: Haukar – KR 18:18 – 22:20.
-á þessum tíma var ekki gripið til framlengingar ef jafnt var að loknum 60 mínútum. Efnt var til annars leiks. Haukar unnu þá viðureign, 22:20.
1997: Haukar – KA 26:24.
2001: Haukar – HK 24:21.
2002: Haukar – Fram 30:20.
2006: Stjarnan – Haukar 24:20.
2010: Haukar – Valur 23:15.
2012: Haukar – Fram 31:23.
2014: Haukar – ÍR 22:21.
2023: Afturelding – Haukar 28:27.
- Í fyrsta sinn var leikið til úrslita í bikarkeppni karla í handknattleik 1974. Valur vann Fram, 24:16.
- Miðasala á úrslitaleiki karla og kvenna fer fram á stubb.is.




