- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Fjölnir kom Stjörnunni í erfið mál

- Auglýsing -

Fjölnir gerði frábæra ferð í Heklu höllina í Garðabæ og lagði Stjörnuna að velli, 24:23, í fyrsta leik liðanna í umspili Olísdeildar karla um eitt sæti í deildinni. Stjarnan hafnaði í næstneðsta sæti Olísdeildarinnar og Fjölnir í sjötta sæti Grill 66 deildarinnar.

Fjölnir er þar með kominn í 1:0 í einvíginu og getur með sigri í öðrum leik liðanna í Fjölnishöll í Grafarvogi á þriðjudagskvöld komist í úrslit umspilsins og um leið fellt Stjörnuna.


Stjarnan hóf leikinn í kvöld mun betur og komst í 4:0 snemma leiks. Staðan var orðin 9:4 eftir tæplega 19 mínútna leik og Garðbæingar í fínum málum.

Þegar leið á fyrri hálfleikinn unnu Fjölnismenn sig hins vegar vel inn í leikinn og minnkuðu muninn niður í aðeins eitt mark, 13:12, sem voru hálfleikstölur.

Síðari hálfleikur var æsispennandi og fór það svo að Fjölnir vann glæsilegan eins marks sigur.

Stjarnan – Fjölnir 23:24 (13:12).

Mörk Stjörnunnar: Ísak Logi Einarsson 4, Benedikt Marinó Herdísarson 4, Daníel Karl Gunnarsson 3, Tandri Már Konráðsson 3, Jóel Bernburg 3, Hans Jörgen Ólafsson 2, Jón Ásgeir Eyjólfsson 2, Patrekur Þór Guðmundsson Öfjörð 1, Róbert Orri Arason 1.
Varin skot: Sigurður Dan Óskarsson 17.

Mörk Fjölnis: Aðalsteinn Örn Aðalsteinsson 7, Ari Magnússon 4, Brynjar Óli Kristjánsson 3, Alex Máni Oddnýjarson 3, Kristján Ingi Kjartansson 2, Björgvin Páll Rúnarsson 2, Heiðmar Örn Björgvinsson 1, Þorleifur Rafn Aðalsteinsson 1, Óli Fannar Pedersen 1.
Varin skot: Bergur Bjartmarsson 17.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -