- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fjórar breytingar – konum fækkar

Stefán Arnarson og Díana Guðjónsdóttir þjálfarar Hauka, halda sínu striki þriðja tímabilið í röð. Mynd/Haukar
- Auglýsing -


Fjögur af átta liðum Olísdeildar kvenna á næsta keppnistímabilið tefla fram nýjum þjálfurum í brúnni þegar flautað verður til leiks í september. Breytingar hafa orðið hjá Íslands- og Evrópubikarmeisturum Vals, einnig hjá Fram, ÍBV og ÍR en síðastnefnda liðið leikur í efstu deild þriðja keppnistímabilið í röð. Hin eru rótgrónari í efstu deild.


Um leið fækkar um tvær konur í hópi þjálfara. Rakel Dögg Bragadóttir sem var þjálfari Fram hætti í vor og sömu sögu er að segja af Sólveigu Láru Kjærnested. Hún ákvað taka sér frí eftir þrjú annasöm ár hjá ÍR. Við af henni tekur Grétar Áki Andersen.

Þrír þjálfarar sem lengi hafa stýrt liðum í efstu deild kvenna og hafa sett mikinn svip á deildarkeppnina, Ágúst Þór Jóhannsson hjá Val og Sigurður Bragason hætta auk þeirra Rakel Daggar og Sólveigar Láru. Ágúst Þór heldur sig reyndar innan sama félags.

Anton, sem tekur við af Ágústi Þór, hefur aldrei verið aðalþjálfari liðs í efstu deild. Grétar Áki verður einnig að þreyta frumraun sína sem aðalþjálfari í efstu deild en hann var aðstoðarmaður Sólveigar Láru á síðustu leiktíð.

Haraldur nýr þjálfari Fram var þjálfari kvennaliðs Aftureldingar í Olísdeildinni fram af leiktíðinni 2019/2020.

Eftirmaður Sigurðar hjá ÍBV, Magnús Stefánsson, hefur góða reynslu eftir að hafa stýrt karlaliði ÍBV undanfarin tvö ár.


Halda áfram:
Haukar: Díana Guðjónsdóttir og Stefán Arnarson.
Selfoss: Eyþór Lárusson og Jóna Margrét Ragnarsdóttir.
Stjarnan: Patrekur Jóhannesson og Hanna Guðrún Stefánsdóttir.
KA/Þór (nýliðar): Jónatan Þór Magnússon.

Breytingar:
Valur: Anton Rúnarsson.
Fram: Haraldur Þorvarðarson.
ÍR: Grétar Áki Andersen.
ÍBV: Magnús Stefánsson.

Þjálfaramál Olísdeildar karla í höfn – helmingur liðanna gerði breytingar

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -