Ísland hafnar í fjórða sæti á Evrópumóti karla eftir að hafa tapað fyrir lærisveinum Dags Sigurðssonar í Króatíu, 34:33, í leiknum um bronsverðlaunin í Jyske Bank Boxen í Herning í Danmörku í dag.
Dagur vinnur því til verðlauna annað stórmótið í röð sem þjálfari Króatíu, sem vann silfurverðlaun á HM 2025. Ísland nær sínum besta árangri á stórmóti frá árinu 2022, þegar liðið hafnaði í sjötta sæti á EM.
Íslenska liðið náði sér ekki á strik stærstan hluta leiksins í dag, fyrir utan hreint frábært áhlaup undir lokin, og hefur aðeins einu sinni unnið Króatíu á stórmóti í níu tilraunum; töpin eru sjö og eitt jafntefli.
Fréttin verður uppfærð.
Mörk Íslands: Ómar Ingi Magnússon 12/10, Gísli Þorgeir Kristjánsson 6, Óðinn Þór Ríkharðsson 5, Bjarki Már Elísson 4, Haukur Þrastarson 2, Elliði Snær Viðarsson 2, Arnar Freyr Arnarsson 1, Janus Daði Smárason 1.
Varin skot: Viktor Gísli Hallgrímsson 6/2, 26,1% – Björgvin Páll Gústavsson 5, 23,8%.
Mörk Króatíu: Tin Lucin 9, Veron Nacinovic 6, David Mandic 4, Ivan Martinovoc 4, Mateo Maras 3, Mario Sostaric 3, Marin Jelinic 3, Filip Clavas 1, Luka Love Klaruica 1.
Varin skot: Matej Mandic 8, 22,2% – Dino Slavic 0.
Handbolti.is er í Boxen og fylgdist með leiknum í textalýsingu hér fyrir neðan.






