- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fjórði sigurinn í röð hjá Elmari og félögum

Elmar Erlingsson, í leik með ÍBV áður en hann fór til Þýskalands. Mynd/Eyjólfur Garðarsson
- Auglýsing -


Elmar Erlingsson skoraði tvö mörk í kvöld þegar Nordhorn-Lingen vann TuS N-Lübbecke, 32:30, á útivelli í næst síðustu umferð þýsku 2. deildarinnar í handknattleik. Elmar átti einnig tvær stoðsendingar sem skiluðu marki.

Nordhorn var með yfirhöndina í leiknum frá byrjun til enda. Heimaliðið náði að minnka muninn í eitt mark skömmu fyrir leikslok.

Sigurinn breytir engu um stöðu Elmars og félaga í deildinni. Þeir sitja áfram í 7. sæti með 35 stig eins og Elbflorenz sem á leik til góða.

Þetta var fjórði sigurleikur Nordhorn-Lingen í röð.

Hefur komið að 179 mörkum

Elmar hefur gert það gott á sínu fyrsta keppnistímabili með Nordhorn. Hann hefur skoraði 109 mörk og gefið 70 stoðsendingar og í 21. sæti á stoðsendingalistanum.

Veik von

Þrátt fyrir sigur í kvöld þá á Balingen-Weilstetten aðeins afar veika von um að endurheimta sæti í efstu deild ári eftir að liðið féll úr deildinni. Balingen lagði HSG Konstanz, 33:27, á útivelli. Daníel Þór Ingason, sem kveður Balingen í sumar og flytur heim með unnustu sinni Söndru Erlingsdóttur og syni, skoraði ekki mark í leiknum í kvöld. Hann átti eina stoðsendingu.


Staðan í 2. deild þýska handknattleiksins í karlaflokki:

Standings provided by Sofascore
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -