- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fjórir landsleikir ytra fyrir EM 2026 – ómögulegt að fá landsleiki til Íslands

Ómar Ingi Magnússon, Viggó Kristjánsson og Óðinn Þór Ríkharðsson landsliðsmenn. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -


Íslenska landsliðið í handknattleik karla hefur undirbúninginn fyrir EM 2026 með tveimur leikjum við þýska landsliðið ytra í lok október eða í byrjun nóvember, að sögn Snorra Steins Guðjónssonar landsliðsþjálfara. Drög að undirbúningi fyrir EM liggja fyrir. Einnig er stefnt að tveimur landsleikjum í Frakklandi í janúar áður en farið verður til Svíþjóðar á EM. Snorri Steinn segir að mikið hafi verið reynt til að fá landsleiki heima í janúar en því miður hafi það ekki tekist. 


Vegna þess að ekki verður um neina leiki í undankeppni stórmóts í landsleikjaglugganum í október/nóvember verður landsleikjavikan nýtt til æfinga og leikjanna tveggja ytra við þýska landsliðið sem leikur undir stjórn Alfreðs Gíslasonar. 

Þegar landsliðið kemur saman í lok október verður það fyrsta samveran frá leikjunum við Bosníu og Georgíu í byrjun þessa mánaðar. 

Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari í handknattleik. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð

Snorri Steinn segir ennfremur að ekki hafi tekist að fá landsleiki til Íslands í byrjun janúar fyrir EM. „Það virðist ekki heilla önnur landsliðs að koma til Íslands á þessum tíma, því miður,“ segir Snorri Steinn. 

Eini kosturinn að fara út

Þess vegna sé eini kosturinn til að fá leiki að mæta landsliðum ytra. „Það lítur út fyrir að við förum til Parísar og mætum Slóvenum og síðan annað hvort Frökkum eða Austurríkismönnum. Þannig er staðan í augnablikinu og útlit fyrir fjóra frábæra leiki fyrir EM,“ segir Snorri Steinn Guðjónsson landsliðþjálfari í handknattleik. 

Karlalandsliðið í handknattleik hefur ekki leikið heimaleik í janúar fyrir stórmót hér heima síðan 2021 þegar portúgalska landsliðið kom til landsins tilneytt til leiks í undankeppni EM, rétt fyrir HM í Egyptalandi.

Fyrsti leikur íslenska landsliðsins á EM 2026 í Kristianstad í Svíþjóð verður gegn ítalska landsliðinu 16. janúar. Þar á eftir taka við leiki við Pólverja og Ungverja 18. og 20. janúar.  Tvö lið komast upp úr riðlinum og í milliriðla. Tvö lið sitja eftir með sárt ennið.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -