- Auglýsing -
Handknattleikssamband Evrópu, EHF, hefur frestað nokkrum leikjum í undankeppni EM karla. Fyrr í dag greindi handbolti.is frá að leikjum Íslands og Ísrael annarsvegar og Noregs og Lettlands hinsvegar sem fram áttu að fara í næstu viku og um aðra helgi hafi verið slegið á frest.
Til viðbótar hefur neðantöldum viðureignum einnig verið frestað:
1.riðill:
Frakkland – Belgía, átti að fara fram 5. nóvember
Belgía – Serbía, átti að fara fram 7. nóvember
3.riðill:
Tékkland – Færeyjar, átti að fara fram 4. nóvember
Færeyjar – Tékkland, átti að fara fram 7. nóvember
6.riðill:
Hvíta-Rússland – Ítalía, átti að fara fram 4. nóvember
Nýir leikdagar hafa ekki verið ákveðnir.
- Auglýsing -