Sigvaldi Björn Guðjónsson landsliðsmaður í handknattleik er orðaður við þýsku liðin Hannover-Burgdorf og Gummersbach í SportBild í dag. Sigvaldi Björn er samningsbundinn norska liðinu til ársins 2030.
Hannover-Burgdorf mun vera á höttunum eftir hægri hornamanni til þess að fylla skarð Marius Steinhauser sem þegar hefur samið við Rhein-Neckar Löwen frá og með næstu leiktíð.
Guðjón Valur Sigurðsson þjálfari Gummersbach er sagður hafa áhuga á að styrkja stöðuna í báðum hornum, eftir því sem fram kemur í Sport Bild. Þar með gæti Sigvaldi Björn komið til álita í hægra horninu með þýska landsliðsmanninum Mathis Häseler.
Aldrei leikið með þýsku liði
Sigvaldi Björn hefur aldrei leikið með þýsku félagsliði. Auk Kolstad hefur Sigvaldi Björn leikið með Elverum í Noregi, Kielce í Póllandi en einnig með Vejle, Bjerringbro/Silkeborg og Århus Håndbold í Danmörku þegar hann var yngri.
Niðurskurðarhnífurinn er á lofti hjá Kolstad og óvíst af þeim sökum hvað verður um samninga leikmanna liðsins. Þegar hafa a.m.k. tveir leikmenn yfirgefið herbúðir Kolstad á síðustu vikum. Hvort Sigvaldi Björn fylgi í kjölfarið í sumar skýrist væntanlega á næstu mánuðum.



