- Auglýsing -
Ákveðið hefur verið að fresta forkeppni heimsmeistaramóts kvenna í handknattleik sem fram átti að fara í byrjun desember. Þess í stað er ráðgert að keppnin verði dagana 19. – 21. mars 2021.
Ástæður frestunarinnar eru tengdar kórónuveirufaraldrinum.
Íslenska landsliðið er í riðli með Norður-Makedóníu, Litháen og Grikklandi. Leika átti í Norður-Makedóníu og stendur það víst óbreytt þótt leikjunum hafi verið frestað fram í mars.
- Auglýsing -