Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands bauð kvennalandsliðinu í handknattleik, þjálfurum og starfsmönnum öðrum til Bessastaða í gær í tilefni af þátttöku þeirra á HM 2023 í handbolta. Með í heimsókninni var vitanlega forsetabikarinn sem íslenska liðið vann á mótinu og kom heim með í farteski sínu nokkrum dögum fyrir jól.
Forseti Íslands hóf mótttökuna með ávarpi þar sem hann þakkaði íslenska landsliðinu fyrir þátttöku þess á HM en forseti Íslands var viðstaddur leik íslenska liðsins þegar þær léku gegn Angóla í Stavanger 4. desember. Sagði forseti Íslands m.a. að með þátttöku á stórmóti væri markað fyrsta skref að enn frekari uppbyggingu kvennahandboltans á Íslandi.
Guðmundur B. Ólafsson, formaður HSÍ, tók einnig til máls og þakkaði Guðna Th. Jóhannessonar forseta Íslands fyrir boðið og stuðning hans við landslið Íslands í handbolta. Sagði Guðmundur að tekið væri eftir því meðal aðildarþjóða handboltans að þjóðhöfðingi Íslands mætti til að styðja landslið Íslands á stórmótum.
Frá þessu er sagt á samfélagsmiðlum HSÍ.