- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Frá Vestmannaeyjum til Ísrael

Pavel Miskevich hefur leikið sinn síðasta leik fyrir ÍBV. Mynd/Eyjólfur Garðarsson
- Auglýsing -


Markvörðurinn Pavel Miskevich kveður ÍBV eftir tveggja og hálfs ár veru og gengur til liðs við ísraelska liðið Holon Yuvalim HC fyrir næsta tímabil. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ÍBV í morgun.


Miskevich, sem er 28 ára gamall Hvít-Rússi, kom til ÍBV í upphafi árs 2023 frá spænska liðinu San Jose Lanzarote. Síðan hefur Miskevich myndað öflugt markvarðateymi með Petar Jokanovic og varð m.a. Íslandsmeistari vorið 2023 eftir æsispennandi leiki við Hauka í úrslitum.

Miskevich var með tæplega 27% hlutfallsmarkvörslu í Olísdeildinni í vetur sem leið.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -