Ótti ríkir í herbúðum Fram um að tveir leikmenn til viðbótar hafi bæst á sjúkralistann í kvöld í leiknum við ÍR; annarsvegar Dagur Fannar Möller og hinsvegar Þorsteinn Gauti Hjálmarsson. Þeir rákust saman þegar Gauti skoraði fyrsta mark leiksins eftir innan við mínútu leik. Gauti fékk þungt högg á nefið og Dagur Fannar var með áverka á höfði.
Gauti kom ekkert meira við sögu í leiknum. Ekki er talið útlokað að hann hafi nefbrotnað. Dagur Fannar kom aðeins við sögu í leiknum eftir áreksturinn.

Það á svo sannarlega ekki af Íslands- og bikarmeisturunum að ganga á fyrstu vikum tímabilsins. Þegar eru Marel Baldvinsson úr leik allt tímabilið vegna slitins krossbands, Magnús Öder Einarsson var í aðgerð á hné á dögunum verður ekki með Fram fyrri en í febrúar og Dánjal Ragnarsson tognaði á nára fyrir hálfum mánuði í bikarleik við Víking. Ómögulegt að segja til um hvenær Dánjal leikur næst með Fram.
Ofan á annað eru fleiri leikmenn sem glímar við smærri meiðsli en berjast áfram.
Evrópuleikur á þriðjudag
Á þriðjudaginn mætir Fram norska liðinu Elverum í annarri umferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar í Lambhagahöllinni.
Fram vann leikinn við ÍR í kvöld, 37:33.