- Auglýsing -

Framarar færðust upp í sjötta sæti eftir öruggan sigur á Víkingi

Haraldur Þorvarðarson, Einar Jónsson, Breki Hrafn Árnason, Eiður Rafn Valsson, Framarar, mæta í KA-heimilið í kvöld. Ljósmynd/Egill Bjarni Friðjónsson
- Auglýsing -

Víkingi tókst ekki að fylgja eftir góðum sigri á Gróttu á síðasta föstudag þegar liðið sótti Fram heim í Úlfarsárdal í kvöld í sjöundu umferð Olísdeildar karla í handknattleik. Þvert á móti þá voru Víkingar langt á eftir leikmönnum Fram nær allan leikinn. Niðurstaðan varð átta marka sigur Fram, 32:24.

Framarar voru mest 10 mörk um yfir í síðari hálfleik.
Að loknum fyrri hálfleik hafði Fram sjö marka forskot, 18:11.


Fram komst þar með upp í sjötta sæti deildarinnar, úr því áttunda. liðið er með sjö stig eftir sjö leiki. Víkingur féll niður um eitt sæti, í fyrra sæti Fram, með sex stig. KA er einnig með sex stig en á leik til góða gegn Gróttu í Hertzhöllinn á Seltjarnarnesi á laugardaginn.

Víkingar byrjuðu leikinn vel. Þeir voru á undan Fram að skora fjögur fyrstu mörkin. Eftir það tók að síga á verri veginn. Vörn Fram var öflug og Lárus Helgi Ólafsson markvörður gerði leikmönnum Víkings gramt í geði ofan á annað. Leikmenn Fram bættu við forskot sitt jafnt og þétt og voru sjö mörkum yfir eftir fyrri hálfleik.

Víkingar skoruðu ekki fyrsta mark sitt í síðari hálfleik fyrr eftir nærri 10 mínútur. Það bætti ekki úr skák.

Fram vann öruggan sigur. Úrslitin virtust ráðinn allan síðari hálfleikinn.

Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.

Mörk Fram: Marko Coric 8, Ívar Logi Styrmisson 7, Rúnar Kárason 7/1, Reynir Þór Stefánsso 4, Stefán Orri Arnalds 4, Tryggvi Garðarson Jónsson 2.
Varin skot: Lárus Helgi Ólafsson 1/1, 35,7% – Arnór Máni Daðason 0.

Mörk Víkings: Halldór Ingi Óskarsson 7/1, Styrmir Sigurðarson 3, Stefán Scheving Guðmundsson 3, Sigurður Páll Matthíasson 3, Brynjar Jökull Guðmundsson 2, Arnar Steinn Arnarsson 1, Benedikt Emil Aðalsteinsson 1, Jóhann Reynir Gunnlaugsson 1, Gunnar Valdimar Johnsen 1, Agnar Ingi Rúnarsson 1, Þorfinnur Máni Björnsson 1.
Varin skot: Sverrir Andrésson 9/3, 28,1% – Daníel Andri Valtýsson 1, 10%.

Handbolti.is fylgdist að einhverju leyti með leiknum í textalýsingu hér fyrir neðan.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -