- Auglýsing -
Forsvarsmenn KA/Þórs eru ekkert að tvínóna þessa dagana enda stendur lið þeirra og deildarmeistarar í eldlínunni í úrslitakeppninni í handknattleik kvenna. Þeir bjóða upp á fría rútuferð frá KA-heimilinu á sunndagsmorgun suður til Reykjavíkur á annan leik Vals og KA/Þórs sem hefst klukkan 15.45 á sunnudag í Origohöll Valsara á Hlíðarenda. Vitanlega verður einnig frí ferð til baka, hvernig sem fer.
Þeir sem vilja slást með í ferðina þurfa aðeins að kaupa aðgöngumiða í gegnum smáforritið Stubb. Skráning í ferðina er bindandi, segir í tilkynningu frá félaginu.
Skráningu og aðrar upplýsingar er hægt að nálgast hér.
- Auglýsing -