- Auglýsing -
Fyrri viðureign dagsins í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í handknattleik karla verður á milli nýkrýndra meistara Þýskalands, Füchse Berlin, og Nantes, silfurliðs frönsku 1. deildarinnar. Leikurinn hefst klukkan 13 að íslenskum tíma. Sigurliðið mætir annað hvort Barcelona eða Magdeburg í úrslitaleik Meistaradeildar á morgun í Lanxess-Arena í Köln.
Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson dæma leikinn.
Füchse Berlin – Nantes, kl. 13
- Füchse Berlin varð þýskur meistari í handknattleik karla í fyrsta sinn á síðasta sunnudag. Liðið var stigi fyrir ofan Magdeburg.
Füchse Berlin hafnaði í þriðja sæti í A-riðli Meistaradeildar. Liðið vann Kielce í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar, 70:64, samanlagt og Aalborg Håndbold í undanúrslitum, 77:65.

- Tveir leikmenn Füchse Berlin eru á meðal þeirra markahæstu í keppninni á leiktíðinni. Mathias Gidsel er næst markahæstur með 126 mörk og Lasse Andersson er næstur með 107 mörk.
- Füchse Berlin skoraði flest mörk allra liða í riðlakeppninni, 469 í 14 leikjum.

- Jaron Siewert er yngsti þjálfarinn sem hefur stýrt liði í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu. Siewert er 31 árs.
- Füchse Berlin var síðast með í úrslitahelgi Meistaradeildar 2012 og hafnaði í fjórða sæti. Dagur Sigurðsson þjálfaði liðið á þeim tíma.
- Vegna alvarlegra meiðsla Valter Chrintz og Jerry Tollbring samdi Füchse Berlin við Tobias Reichmann og Manuel Strlek snemma leiktíðar. Báðir leika þeir sína síðustu leiki fyrir Berlinarliðið um helgina.
- Reichmann, Strlek og Dejan Milosavljev eru einu leikmenn Füchse Berlin sem hafa unnið Meistaradeild Evrópu. Tveir þeir fyrstnefndu léku með Kielce í eftirminnilegum úrslitaleik 2016 en Milosavljev var markvörður Vardar þegar liðið vann Meistaradeildina 2019.
- Nantes varð í þriðja sæti í B-riðli Meistaradeildarinnar í vetur. Liðið vann Wisla Plock, 54:52, samanlagt í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar og lagði Sporting Lissabon, 60:57, í tveimur leikjum í átta liða úrslitum.
- Markvörðurinn Ivan Pesic var maðurinn á bak við sigurinn á Sporting. Hann varði 16 skot í síðari leiknum. Pesic kveður Nantes eftir leikina um helgina.

- Aymeric Minne er markahæsti leikmaður Nantes í keppninni með 84 mörk. Spænski hornamaðurin Valero Rivera er næstur með 80 mörk.
- Rivera var markahæstur í Meistaradeildinni vorið 2021 með 95 mörk.
- Þrír leikmenn Nantes hafa unnið Meistaradeildina, þó ekki með Nantes. Baptiste Bonnefond og Julien Bos voru í sigurliði Montpellier fyrir sjö árum og Valero Rivera lék með Barcelona 2005 þegar spænska stórliðið stóð uppi sem sigurvegari.

- Gregory Cojen þjálfari Nantes var aðstoðarþjálfari liðsins þegar Nantes komst í úrslit 2021 en tapaði fyrir Barcelona. Alberto Entrerrios núverandi þjálfari Limoges var þá aðalþjálfari Nantes.
- Nantes hefur tvisvar leikið til úrslita í Meistaradeild Evrópu, 2018 og 2021, en beið lægri hlut í bæði skipti.
- Viktor Gísli Hallgrímsson var markvörður Nantes frá 2022 til 2024.
- Auglýsing -