- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fyrirliðinn heldur ótrauður áfram næsta árið

Jóhann Reynir Gunnlaugsson t.h. ásamt Aðalsteini Eyjólfssyni þjálfara. Mynd/Víkingur
- Auglýsing -


Jóhann Reynir Gunnlaugsson fyrirliði handknattleiksliðs Víkings hefur ákveðið að taka slaginn eitt ár til viðbótar og þar af leiðandi skrifað undir nýjan samning við félagið.

Jóhann Reynir á að baki um 250 leiki með Víkingi og hátt í 400 á ferlinum. Það er því mikill styrkur fyrir Víking að hafa jafn reynslumikinn leikmann í sínum röðum og mun hann áfram leika lykilhlutverk innan vallar sem utan.


„Það er mér heiður að halda áfram sem fyrirliði Víkings. Félagið er á réttri leið og ég hlakka til að taka þátt í næsta kafla – bæði sem leikmaður og leiðtogi innan liðsins,“ sagði Jóhann Reynir við undirritun samnings.

Víkingur hefur sett markið á sigur í Grill 66-deildinni á næsta tímabili og að ná góðum árangri í Powerade bikarnum. Jóhann mun gegna þar veigamiklu hlutverki við mótun nýrra leikmanna og eflingu liðsheildar. Mikil áhersla hefur verið undanfarin ár að styrkja umgjörð handboltans hjá Víkingi og efla fagmennsku í þjálfun á öllum stigum með það að markmiði að koma þessu fyrrum handboltaveldi meðal þeirra bestu á nýjan leik, segir í tilkynningu frá Víkingi.

Er kjarninn í meiningu Víkings

„Jóhann Reynir er kjarninn í þeirri menningu sem við erum að byggja upp hjá Víkingi. Hann er ósérhlífinn, fagmannlegur og með sterka réttlætiskennd – hann heldur öllum á tánum og sýnir hvernig á að vinna bæði fyrir sjálfan sig og hópinn. Að framlengja við hann var forgangsmál og mikilvægur þáttur í því að tryggja stöðugleika og framþróun hjá meistaraflokknum“, segir Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfari Víkings sem heldur ótrauður áfram inn í annað keppnisár með Víkingi.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -