Kjartan Vídó Ólafsson, fyrrverandi markaðsstjóri Handknattleikssambands Íslands, hefur vent kvæði sínu í kross og ákveðið að hella sér út í bæjarmálin í heimabæ sínum, Vestmannaeyjum. Vídó hefur tilkynnt um framboð í 3. – 4. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum sem fer fram hinn 13. mars.
„Ég trúi því að góð og heiðarleg stjórnmál byggist á nálægð, trausti og sterkri liðsheild,“ segir Vídó sem þekkir sterka liðsheild frá störfum sínum með íslensku landsliðunum í handknattleik árum saman.
„Áhugi minn snýr ekki að því að sækjast í pólitík fyrir pólitískar sakir. Ástæðan er einföld: mig langar að leggja mitt af mörkum, taka ábyrgð og vinna að því að gera gott samfélag enn betra,“ segir Kjartan Vídó Ólafsson sem lét af störfum hjá HSÍ síðasta vor og flutti heim á bernskustöðvarnar.
(Tekið skal fram að ekki er greitt fyrir birtingu þessarar tilkynningar).




