Óðinn Þór Ríkharðsson og samherjar í svissneska meistaraliðinu í Kadetten Schaffhausen töpuðu í gær sínum fyrsta leik á leiktíðinni í Sviss er þeir sóttu Wacker Thun heim. Lokatölur, 34:31. Óðinn Þór skoraði eitt mark úr eina markskotinu sem hann átti í leiknum.
Kadetten Schaffhausen hafði leikið 23 leiki í röð á leiktíðinni í deildinni og bikarkeppninni þegar kom að tapleiknum í gær. Síðasta tap liðsins í deildinni var í apríl á síðasta ári.
Þrátt fyrir tapið þá hefur Kadetten Schaffhausen yfirburðastöðu í A-deildinni með 38 stig eftir 20 leiki. Pfadi Winterthur er níu stigum á eftir en á reyndar leik til góða.
Næsti leikur Kadetten Schaffhausen verður gegn HC Kriens á miðvikudaginn. HC Kriens situr í þriðja sæti.



