Unglingalandsliðsmaðurinn Garðar Ingi Sindrason hefur skrifað undir nýjan samning við FH sem gildir út tímabilið sem lýkur vorið 2027. Garðar Ingi, sem er fæddur árið 2007, er uppalinn FH-ingur.
Garðar Ingi er vinstri skytta. Hann hefur átt fast sæti í yngri landsliðum Íslands og var síðast í U19 ára landsliðinu sem hreppti annað sæti á Sparkassen Cup-mótinu í Þýskalandi á milli jóla og nýárs. Einnig var Garðar Ingi í U18 ára landsliðinu sem varð í 4. sæti á EM í ágúst.
Garðar Ingi hefur leikið stórt hlutverk hjá FH á yfirstandandi tímabili jafnt í leikjum Olísdeildarinnar og í Evrópudeildinni. Hann hefur skoraði 36 mörk í 14 leikjum í Olísdeildinni í vetur.
„Við hlökkum til að sjá Garðar Inga halda áfram að vaxa og dafna í FH-treyjunni á næstu árum,“ segir í tilkynningu handknattleiksdeildar FH í morgun.