Gauti Gunnarsson hornamaður Stjörnunnar hefur jafnað sig eftir að hafa verið harkalega stöðvaður í viðureign Stjörnunnar og Fram í meistarakeppni HSÍ á síðasta fimmtudag. „Hann er bara góður,“ sagði Hrannar Guðmundsson þjálfari Stjörnunnar við handbolta.is í morgun.
Fyrstu fregnir af Gauta eftir viðureignina við Fram voru ekki uppörvandi. Sem betur fer hefur annað komið á daginn.
Gauti fer með Stjörnuliðinu til Rúmeníu í viðureignina við CS Minauer Baia Mare sem fram fer á laugardaginn. Stjörnumenn halda af stað undir miðnætti í kvöld. Leikurinn er sá fyrri á milli liðanna í forkeppni Evrópudeildar.
„Gauti stefnir á að spila með í Rúmeníu,“ sagði Hrannar Guðmundsson sem fer með sína vöskustu sveit út.
Starri verður í hópnum
Starri Friðriksson sem verið hefur frá keppni síðan í janúar eftir að hann fór úr axlarlið verður í Rúmeníuhópnum þótt ekki sé hægt að slá föstu hvort hann tekur þátt í leiknum eða ekki.
Sveinn áfram fjarri góðu gamni
Eins og áður hefur komið fram verður Sveinn Andri Sveinsson ekki með Stjörnunni næstu fjórar til sex vikur. Hrannar staðfesti það síðast í morgun við handbolta.is en áður hafði hann sagt frá því í viðtali eftir fyrrgreindan leik við Fram.
Síðari viðureign Stjörnunnar og CS Minauer Baia Mare verður í Hekluhöllinni í Garðabæ laugardaginn 6. september og hefst klukkan 13. Miðasala er hafinn á stubb.is.