- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Get kannski útskýrt það seinna hvers vegna ég kom fyrr heim

- Auglýsing -

Markvörðurinn Grétar Ari Guðjónsson sneri nokkuð óvænt aftur heim til Hauka í byrjun ársins eftir margra ára dvöl í atvinnumennsku. Eftir fimm ár í Frakklandi samdi hann við AEK Aþenu síðasta sumar og skrifaði þá undir tveggja ára samning. Dvölin í Grikklandi varði hins vegar í aðeins hálft ár.

„Ég eiginlega get ekki útskýrt það eins og staðan er í dag. Mögulega get ég útskýrt það seinna. Það er lítið sem ég get sagt. Þetta er ennþá í vinnslu ef það má orða það svoleiðis,“ segir Grétar Ari í samtali við handbolta.is, spurður hvað hafi orðið þess valdandi að hann kom heim á miðju tímabili.

Haukar styrkjast – Grétar Ari mætir í markið


Greina má af þessum orðum að eitthvað hefur komið upp á í Aþenu þó Grétar Ari, sem er 29 ára gamall, treysti sér ekki til þess að ræða það í þaula að sinni.

„Já, það er pínu flókið eins og er. Það voru alveg frábærir hlutir og svo voru ekki góðir hlutir. Það er bara eins og það er,“ segir hann um erfiðleikana í Grikklandi.

Leiðinlegt að enda þetta á svona nótum

Hvernig líður þér að vera kominn heim?

„Mér líður bara ágætlega. Mér finnst þetta mjög skemmtilegt. Mér finnst þetta skemmtilegra hérna heima heldur en var úti. Það er svona öðruvísi stemning yfir þessu og það skiptir mig miklu máli.

En auðvitað er leiðinlegt að enda þetta á svona nótum eins og þetta endaði úti, vegna þess að ég var með tveggja ára samning og var ekki beint að pæla í því að koma heim alveg strax,“ segir Grétar Ari.

Hæpið að fara aftur út

Þrátt fyrir að dvölinni erlendis hafi lokið nokkuð skyndilega er hann ánægður með atvinnumannsferilinn. Grétar Ari lék með Nice, Sélestat og síðast Ivry í Frakklandi um fimm ára skeið. Lék hann í tveimur efstu deildum Frakklands.

„Það var mjög indælt að vera í Ivry í Frakklandi. Þar var spilaður mjög góður handbolti og það náðu allir að toppa á flestum sviðum. Svo kippti hinn markmaðurinn manni reglulega niður á jörðina en mér fannst það geggjað,“ segir Grétar Ari.

En leitar hugurinn aftur út? „Nei, ekki þannig. Ég er ekki að útiloka það en mér finnst það svona frekar hæpið,“ segir Grétar Ari Guðjónsson í viðtali við handbolta.is.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -