Mathias Gidsel, besti handboltamaður heims samkvæmt Alþjóðahandknattleikssambandinu undanfarin þrjú ár, viðurkennir að hafa glímt við andleg veikindi þegar hann var að brjótast fram á sjónarsviðið fyrir nokkrum árum.
Daninn hefur unnið hvern titilinn á fætur öðrum á ferlinum og er meðal annars ríkjandi Evrópu-, heims- og ólympíumeistari með Danmörku. Ferill hans hefur þó ekki ávallt verið dans á rósum.
„Eftir fyrsta heimsmeistaramótið mitt í Egyptalandi árið 2021 átti ég í andlegum erfiðleikum þegar velgengni mín jókst stöðugt. Ég æfði alltaf af krafti og var ávallt vel undirbúinn líkamlega en á einhverjum tímapunkti áttaði ég mig á því að andleg heilsa er alveg jafn mikilvæg,“ sagði Gidsel í samtali við þýska miðilinn Bild.
Þar var hægri skyttan spurð hvort að hlutirnir færu nokkru sinni úrskeiðis hjá honum. Gidsel svaraði spurningunni einlæglega og bætti því við að hann hefði mörg undanfarin ár unnið með aðilum sem sérhæfa sig í hugrænni þjálfun í því skyni að fá aðstoð vegna andlegra erfiðleika.


