- Auglýsing -
Mathias Gidsel sló í kvöld markamet Evrópumóts karla þegar hann skoraði sjö mörk í sjö marka sigri Danmerkur á Þýskalandi í úrslitaleik mótsins í Herning í kvöld.
Gidsel skoraði alls 68 mörk í níu leikjum á Evrópummótinu og bætti þar með met Norðmannsins Sander Sagosen frá EM 2020, sem var 65 mörk.
Danmörk Evrópumeistari í fyrsta sinn í 14 ár
Hægri skyttan fór á kostum á mótinu og var enda valinn verðmætasti leikmaður þess fyrir úrslitaleikinn í kvöld.
Gidsel er fyrsti leikmaður Danmerkur í sögunni sem er valinn besti leikmaður Evrópumótsins.
- Auglýsing -


