Füchse Berlin styrkti stöðu sína í kapphlaupinu um þýska meistaratitilinn í handknattleik karla í kvöld með öruggum sigri á MT Melsungen, 37:29, í Max Schmleing-Halle í Berlín. Liðin voru jöfn að stigum fyrir viðureignina. Füchse Berlin endurheimti efsta sætið með sigrinum. Berlínarliðið er stigi á undan SC Magdeburg og tveimur stigum framar en MT Melsungen þegar þrjár umferðir eru eftir.
Daninn Mathias Gidsel var frábær í leiknum. Hann skoraði 15 mörk fyrir Berlínarliðið, ekkert þeirra úr vítaköstum. Fengu leikmenn MT Melsungen ekkert við hann ráðið. Gidsel er aðeins skráður fyrir einni stoðsendingu. Tim Freihöfer var einnig öflugur eins og hann hefur verið allt tímabilið. Freihöfer skoraði átta mörk.
Elvar Örn Jónsson skoraði fjögur mörk fyrir MT Melsungen og var einu sinni vikið af leikvelli. Arnar Freyr Arnarsson skoraði ekki. Timo Kastening var markahæstur Melsungen-manna með sex mörk.
Füchse Berlin var sterkara frá upphafi til enda í leiknum í kvöld. Að fyrri hálfleik loknum var forskotið fimm mörk, 17:12.
Bietigheim krækti í stig
Af öðrum leikjum dagsins í þýsku 1. deildinni er það að segja að Bietigheim, sem er í harðri baráttu við Viggó Kristjánsson og samherja í HC Erlangen við að forðast fall, krækti í stig á heimavelli gegn Flensburg, 29:29. Leikmenn Flensburg virtust áttavilltir eftir ferðalagið til suðuaustur Þýskalands því þeir voru níu mörkum undir í hálfleik, 21:12.
Bietigheim, sem er í 16. sæti, er stigi á undan Erlangen í 17. og næst síðasta sæti. Bietigheim hefur leikið einum leik færra en Erlangen. Liðin mætast á heimavelli Bietigheim á sunnudaginn.
Stuttgart, sem einnig er í slæmri stöðu skammt frá fallsæti, vann Rhein-Neckar Löwen í Mannheim í dag, 33:26.
Staðan í þýsku 1. deildinni: